Hebreska sjálfstjórnarfylkið
Hebreska sjálfstjórnarfylkið (á rússnesku: Еврейская автономная область), er í Rússneska sambandsríkinu og ein 83 eininga þess. Það liggur að Khabarovskfylki og Amúrfylki í austurhluta sambandsríkisins og við landamæri Heilongjiang-héraðs í Kína. Fylkið er um 36.000 ferkílómetrar.
Árið 2010 voru íbúar um 176.558, af ýmsu þjóðerni, en langstærstur hluti þeirra Rússar eða 93%. Önnur þjóðarbrot eru: Úkraínumenn 3% og Gyðingar um 1%. Höfuðstaður fylkisins er Birobidzhan með um 75 þúsund íbúa.
Saga
breytaLandsvæðið var byggt upp þegar rússneska keisaradæmið skipaði Amúr-kósökkum að verja austurlandamæri Rússlands 1848. Þéttbýli jókst síðan þegar Síberíuhraðlestin til Vladivostok var lögð um svæðið.
Hebreska sjálfstjórnarfylkið var stofnað sem stjórnsýslueining innan Sovétríkjanna árið 1934 sem afleiðing af þjóðernisstefnu Jósefs Stalíns. Gyðingum var þar úthlutað landsvæði innan Sovétríkjanna til að stunda jiddíska menningararfleifð sína innan hins sósíalíska kerfis.
Árið 1939 bjuggu þar um 18.000 Gyðingar eða um 16% mannfjöldans. Hámarki náði fjöldi þeirra árið 1948 þegar þeir voru um 30.000, eða um fjórðungur íbúa svæðisins. Árið 2002 voru þar einungis 1.628 gyðingar (1% mannfjöldans), en Rússar töldu um 92,7% íbúanna.
Heimildir
breyta- Fyrirmynd greinarinnar var „Jewish Autonomous Oblast“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt {{{mánuðurskoðað}}} 2012.
Tenglar
breyta- Opinber vefur Hebreska sjálfstjórnarfylkisins Geymt 11 apríl 2021 í Wayback Machine – á ensku.
- Information Site Geymt 9 júlí 2013 í Wayback Machine – á rússnesku.
- Stalin's Forgotten Zion: Birobidzhan and the Making of a Soviet Jewish Homeland: An Illustrated History, 1928-1996 – á ensku.
- Birobidzhan: Dream of a Jewish Homeland That Never Came True eftir Eve-Maria Stolberg (Russian Archipelago) – á ensku.
- Sovéskur bæklingur frá 1939 um fylkið –á ensku.