Odysseas Elytis
Odysseas Elytis (Gríska: Οδυσσέας Ελύτης) (2. nóvember 1911 – 18. mars 1996) var grískt skáld. Hann var einn helsti módernistinn í grískum nútímabókmenntum á fyrri hluta 20. aldar. Hann hét réttu nafni Alepoudelis, en varð frægur undir dulnefninu Elytis. Hann hlaut bókmenntaverðlaun Nóbels 1979.