Einmana Örn
Einmana örn (f. L'Aigle solitaire) eftir Jean-Michel Charlier og Jean Giraud er þriðja bókin í bókaflokknum um Blástakk liðsforingja. Sagan kom út í bókarformi árið 1967 og hefur ekki komið út á íslensku.
Söguþráður
[breyta | breyta frumkóða]Bókin tekur upp þráðinn þar sem frá var horfið frá næstu bók á undan, Þrumur í vestri. Flokkur riddaraliða finnur Blástakk og son Stantons örmagna eftir margra daga flótta frá Mexíkó og fylgja þeim til Witmann-virkis. Blástakkur vill ólmur ná fundi Crook hershöfðingja í Bowie-virki og er falið að fylgja vagnalest með leynilega vopnasendingu þangað í fylgd nokkurra riddara og apasa-spæjara að nafni Quanah. Í bænum Pecos er vörður um vagnana myrtur í skjóli nætur og Blástakkur afræður að fara fáfarnari og lengri leið til virkisins af ótta við fyrirsát indíána.