John Boehner
John Boehner | |
---|---|
Forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings | |
Í embætti 5. janúar 2011 – 29. október 2015 | |
Forveri | Nancy Pelosi |
Eftirmaður | Paul Ryan |
Fulltrúadeildarþingmaður fyrir 8. kjördæmi Ohio | |
Í embætti 3. janúar 1991 – 31. október 2015 | |
Forveri | Buz Lukens |
Eftirmaður | Warren Davidson |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 17. nóvember 1949 Reading, Ohio, Bandaríkjunum |
Þjóðerni | Bandarískur |
Stjórnmálaflokkur | Repúblikanaflokkurinn |
Maki | Deborah Gunlack (g. 1973) |
Börn | 3 |
Háskóli | Xavier-háskóli |
Starf | Stjórnmálamaður |
Undirskrift |
John Andrew Boehner (f. 17. nóvember 1949) er bandarískur stjórnmálamaður, fulltrúadeildarþingmaður og fyrrverandi forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings. Hann hefur setið í fulltrúadeildinni fyrir Repúblikanaflokkinn síðan 1991, starfaði sem leiðtogi minnihlutans í þinginu síðan 2007 og var kjörinn forseti deildarinnar í janúar 2011.
Þingferill
[breyta | breyta frumkóða]Boehner var fyrst kosinn á þing árið 1990 sem fulltrúi Ohio. Það fyrsta sem Boehner kom í verk á þingi var að taka þátt með Sjöklúbbnum (e. Gang of Seven) í að „taka til í þinginu“, meðal annars að loka fulltrúabankanum (e. House bank) vegna hneykslis varðandi fjárreiður þingmanna í tengslum við bankann. Einnig komu þeir upp um hneyksli varðandi veitingastað þingsins og pósthús en pósthúsið tengdist meðal annars eiturlyfjasölu og illa fengnu fé.[1]
Annað sem Boehner stóð að á þessum fyrstu árum sínum var að móta „samning við Bandaríkin“ (e. Contract with America) árið 1994, meðal annars í samstarfi við Newt Gingrich. Þetta skjal sem var í raun stefnuskrá, var notað í kosningabaráttu repúblikana árið 1994 og er talinn stór þáttur í því að repúblikanar náðu meirihluta í neðri deildinni í fyrsta skipti í fjóra áratugi.
Boehner starfaði meðal annars sem fundarstjóri repúblikana í fulltrúadeildinni (e. House Republican Conference Chairman), var forseti ýmissa nefnda auk þess að leiða ýmis mikilvæg frumvörp á borð við „Ekkert barn skilið eftir“ (e. No Child left Behind)[2] sem lagt var fram til að tryggja öllum börnum menntun. Árið 2006 var hann síðan kosinn til þess að leiða meirihluta repúblikana í þinginu sem hann gerði í eitt ár eða þar til demókratar náðu meirihluta í þinginu en Boehner var þá kosinn leiðtogi minnihlutans. [3]
Boehner var kjörinn forseti fulltrúadeildarinnar þegar nýr meirihluti tók við 3. janúar 2011 en meðal kosningaloforða hans var að minnka útgjöld alríkisins, skapa fleiri störf og breyta vinnulagi í þinginu. Gagnrýnendur hans sögðu þetta þó ómarkviss loforð þar sem hann tilgreindi ekki á neinn hátt hvernig hann ætlaði að efna þessi loforð. Boehner tók einnig þátt í gagnrýni repúblikana á Obama og stjórn hans. [4]
Æviágrip
[breyta | breyta frumkóða]Boehner sem fæddist 17. nóvember 1949 ólst upp kaþólskri fjölskyldu í Cincinnati í Ohio ásamt ellefu systkinum. Faðir hans átti bar sem hann byrjaði að vinna á, ungur að aldri. Boehner úskrifaðist úr Xavier háskóla árið 1977 og fór að vinna í innpökkunarfyrirtæki þar sem hann varð síðar forstjóri þar til hann fór út í stjórnmál í Ohio árið 1984. Hann og kona hans, Debbie, eiga saman tvö börn. Þrátt fyrir að Boehner væri alinn upp í demókratafjölskyldu studdi hann repúblikana frá árinu 1970 og er nú þekktur íhaldsmaður og frjálshyggjusinni en hann hefur meðal annars verið gagnrýndur fyrir tengsl sín við ýmsa þrýstihópa. [5]
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ „John Boehner Biography“. Sótt 12. nóvember 2010.
- ↑ „Accountability and Avoidance in the Bush Education Plan: The 'No Child Left Behind Act Of 2001.'“ (PDF). Sótt 13. nóvember 2010.
- ↑ „John A. Boehner“. Sótt 13. nóvember 2010.
- ↑ „Tight Deadline for New Speaker to Deliver“. Sótt 13. nóvember 2010.
- ↑ „John A. Boehner“. Sótt 13. nóvember 2010.
Tenglar
[breyta | breyta frumkóða]- John Boehner - 8th District of Ohio Geymt 4 júlí 2014 í Wayback Machine
- House Republican Leader John Boehner
Fyrirrennari: Nancy Pelosi |
|
Eftirmaður: Paul Ryan |