Episodes

  • Jóhanna Jónasdóttir er leikkona, heilar, þerapisti og dansari. Hún er móðursystir mín og hefur verið uppáhaldsfrænka frá því ég man eftir mér. Hún menntaði sig sem leikkona í Bandaríkjunum og átti mikilli velgengni að fagna í þeim bransa, fyrst í New York og Hollywood, en við heimkomu til Íslands var hún fastráðin við Borgarleikhúsið í nokkur ár. Í kjölfar algers hruns á líkama og sál tók við djúp heilunar- og sjálfsvinna sem leiddi hana í heilunarnám. í dag starfar hún sem heilari og samtalsþerapisti og hjálpar öðrum að takast á við áföll og erfiðleika. Þessa dagana gefur hún út sjálfsævisögu sína: Frá Hollywood til heilunar, sem er ekki aðeins heiðarlegt uppgjör við ævina, sorgir og sigra, heldur einnig aðgengileg sjálfshjálparbók.

    Þetta er yndislegt spjall þar sem tenging okkar er nú þegar mjög djúp og við týnum okkur alveg í flæði og tengingu.

    Heimasíða Jóhönnu með hugleiðslum og námskeiðum:
    www.johannajonasar.is

    ------

    Bjarni Snæbjörnsson heldur úti hlaðvarpinu Mennsku

    Hægt er að nálgast nýjustu bók Bjarna, sem heitir heitir einnig Mennska í næstu bókabúð.

    www.bjarnisnae.com

    Instagram: bjarni.snaebjornsson

    Facebook: https://www.facebook.com/bjarniactor

    Tónlist: Axel Ingi Árnason

    Grafísk hönnun og bókakápa Emilía Ragnarsdóttir



  • Kolbrún Dögg er sviðslistakona, höfundur, aktívisti og leikkona. Hún leikur nú í sínu eigin verki í Þjóðleikhúsinu sem nefnist Taktu flugið, beibí og þar segir hún frá lífshlaupi sínu, sigrum og hindrunum.
    Í spjalli vikunnar förum við vítt og breitt eins og vanalega og tölum að sjálfsögðu um listina, aktívismann, aðgengismál, mannréttindi, ritstörfin og drauma framtíðarinnar. Kolbrún er svo yndisleg og jarðtengd að ég öðlaðist stærra hjarta og mikla innri ró við að kynnast henni svona vel og eyða með henni smá stund.

    ----

    Bjarni Snæbjörnsson heldur úti hlaðvarpinu Mennsku

    Hægt er að nálgast nýjustu bók Bjarna, sem heitir heitir einnig Mennska í næstu bókabúð.

    www.bjarnisnae.com

    Instagram: bjarni.snaebjornsson

    Facebook: https://www.facebook.com/bjarniactor

    Tónlist: Axel Ingi Árnason

    Grafísk hönnun og bókakápa Emilía Ragnarsdóttir

  • Missing episodes?

    Click here to refresh the feed.

  • Una þarf varla að kynna en hún hefur geirneglt sig inn í íslenskt tónilstarlíf á stuttum en kraftmiklum ferli frá því fyrsta lagið hennar kom út í mars 2022. Í þætti dagsins förum við yfir hvað leiddi hana að tónlistarferlinum og hvernig er umhorfs hjá henni í dag. Við ræðum einnig sviðslistir, klæðskerasaum, giggin og að sjálfsögðu nýjan söngleik hennar Storm, sem verður frumsýndur í Þjóðleikhúsinu snemma árs 2025. Þetta var svo gefandi og skemmtilegt spjall við konu sem gerir allt frá hjartanu.

    ----

    Bjarni Snæbjörnsson heldur úti hlaðvarpinu Mennsku

    Hægt er að nálgast nýjustu bók Bjarna, sem heitir heitir einnig Mennska í næstu bókabúð.

    www.bjarnisnae.com

    Instagram: bjarni.snaebjornsson

    Facebook: https://www.facebook.com/bjarniactor

    Tónlist: Axel Ingi Árnason

    Grafísk hönnun og bókakápa Emilía Ragnarsdóttir

  • Sindri Sparkle (hún/hán/hann) er einstakt fjöllistakvár sem starfar við grafíska hönnun, uppistand, ljóðaskrif og myndlist. Í þætti vikunnar kynnist ég þessum stormsveip sem er uppfullt af húmor, gáska og hlátri. Við ræðum að sjálfsögðu hinseginleikann í allri sinni dýrð og förum vítt og breitt um heim listarinnar, hvernig við látutum hlutina gerast og þurfum líka að vinna tengiliðavinnu og plögga okkur. Svo mergjaður þáttur og það gustar alveg um stúdíóið í orkunni sem stafar af Sindra.

    Sindri á instagram: sindrisparklefreyr
    ----

    Bjarni Snæbjörnsson heldur úti hlaðvarpinu Mennsku

    Hægt er að nálgast nýjustu bók Bjarna, sem heitir heitir einnig Mennska, í næstu bókabúð.

    www.bjarnisnae.com

    Instagram: bjarni.snaebjornsson

    Facebook: https://www.facebook.com/bjarniactor

    Tónlist: Axel Ingi Árnason

    Grafísk hönnun og bókakápa Emilía Ragnarsdóttir

  • Birna Rún er manneskja með marga hatta og hún er alveg svakalega góð í öllu sem hún tekur sér fyrir hendur. Sem leikkona hefur hún sést á skjám landsmanna í fjölda ára og hlaut Edduna á sínum tíma fyrir Rétt. Hún hefur leikið mikið á sviði og flæddi lífrænt inn í það að verða mjög vinsæl á tiktok og instagram. Svo er hún uppistandari, veislustjóri og er nú að stíga sín fyrstu skref sem leikstjóri í gamanþáttaseríunin Flamingo Bar sem sýndur er á Stöð 2.

    í þættinum ræðum við bransann, lífið, kynlífið, börnin, hundana, að stíga inn í sjálfa sig, hræðslu okkar beggja við stöðnun og hvernig við getum gefið okkur sjálfum heimild til að vera við sjálf. Þetta er svo skemmtilegt og heiðarlegt spjall. Ég elskaði hverja mínútu.

    Birna á instagram: birnaruneiriks

    ----

    Bjarni Snæbjörnsson heldur úti hlaðvarpinu Mennsku

    Hægt er að nálgast nýjustu bók Bjarna, sem heitir heitir einnig Mennska í næstu bókabúð.

    www.bjarnisnae.com

    Instagram: bjarni.snaebjornsson

    Facebook: https://www.facebook.com/bjarniactor

    Tónlist: Axel Ingi Árnason

    Grafísk hönnun og bókakápa Emilía Ragnarsdóttir

  • Kristín Taiwo Reynisdóttir (hún/hennar) er háskólanemi og einn af stofnendum Antirastistanna sem er hópur aktivista sem er með það markmið að fræða Íslendinga um rasisma. Hópurinn heldur úti instagram reikningnum @antirasistarnir og hefur gefið út hlaðvörp og staðið fyrir ýmiskonar fræðslu. Í þættinum segir Stína mér frá reynsluheimi sínum og hvernig það er að vera svört á Íslandi. Svo förum við yfir hvernig hvernig við getum mætt hvert öðru betur. Fyrir utan allt þetta læri ég líka um hvernig unga fólkið djammar í dag eins og t.d. á októberfest. Þetta var svo skemmtilegt spjall þar sem við hlógum að lífinu og hversu fáránlegt fólk getur stundum verið.

    ------

    Bjarni Snæbjörnsson heldur úti hlaðvarpinu Mennsku

    Hægt er að nálgast nýjustu bók Bjarna, sem heitir heitir einnig Mennska í næstu bókabúð.

    www.bjarnisnae.com

    Instagram: bjarni.snaebjornsson

    Facebook: https://www.facebook.com/bjarniactor

    Tónlist: Axel Ingi Árnason

    Grafísk hönnun og bókakápa Emilía Ragnarsdóttir

  • Einar Þór er einstakur aktívisti sem hefur staðið vaktina í málefnum hinsegin fólks og HIV smitaðra í áraraðir. Í þætti vikunnar förum við yfir æsku hans í Bolungavík og lærum hvernig sögur okkar tveggja eru að mörgu leiti líkar, þó 20 ár skilji okkur að. Einar segir okkur einnig frá ferðalagi sínu út úr skápnum og hann lýsir því hvernig alnæmisfaraldurinn var fyrir hann og hans samferðafólk. Svo tölum við auðvitað um tilfinningar og hann segir okkur hvernig hann passar upp á sig í gegnum lífsins ólgusjó og áföll.

    -----

    Bjarni Snæbjörnsson heldur úti hlaðvarpinu Mennsku

    Hægt er að nálgast nýjustu bók Bjarna, sem heitir heitir einnig Mennska í næstu bókabúð.

    www.bjarnisnae.com

    Instagram: bjarni.snaebjornsson

    Facebook: https://www.facebook.com/bjarniactor

    Tónlist: Axel Ingi Árnason

    Grafísk hönnun og bókakápa Emilía Ragnarsdóttir

  • Bashar Murad was the main guest at Reykjavík Pride this year performing both at the opening ceremony as well as on the big stage in down town Reykjavík for the 100.000 guests that showed up for the celebration.
    He is a Palestinian pop star who has been making a name for himself in Europe and beyond. In this episode he tells me about his childhood and how it was growing up under an occupation. We delve into the topics of pinkwashing and talk music, art, queerness and how we can come together and make the world a better, safer place.

    Please follow bashar on instagram: basharmuradofficial
    ---

    Bjarni Snæbjörnsson is the host in the podcast Mennska (meaning: humanity).

    www.bjarnisnae.com

    Instagram: bjarni.snaebjornsson

    Facebook: https://www.facebook.com/bjarniactor

    Music: Axel Ingi Árnason

    Graphic design: Emilía Ragnarsdóttir

  • Helga Haraldsdóttir stendur í ströngu þessa dagana enda er hún formaður Hinsegin daga í Reykjavík (ekki "Íslands" eins og ég segi í þáttunum!). Hún er einnig magnaður kokkur og við tengjumst beint í gegnum nostalgískar æskuminningar frá Vestfjörðum.

    Í þætti vikunnar förum við yfir mikilvægi Hinsegindaga og tölum um hátíðina í ár sem er stórglæsileg að vanda. Hún segir mér frá skemmtilegu lífshlaupi sínu og hver hennar togstreita hefur verið í sambandi við hinseginleikann. Svo hlæjum við svo mikið og gerum stólpagrín - að okkur sjálfum.

    Þáttur vikunnar kemur extra snemma því ég er svo spenntur fyrir Hinsegindögum!

    ---

    Bjarni Snæbjörnsson heldur úti hlaðvarpinu Mennsku

    Hægt er að nálgast nýjustu bók Bjarna, sem heitir heitir einnig Mennska í næstu bókabúð.

    www.bjarnisnae.com

    Instagram: bjarni.snaebjornsson

    Facebook: https://www.facebook.com/bjarniactor

    Tónlist: Axel Ingi Árnason

    Grafísk hönnun og bókakápa Emilía Ragnarsdóttir

  • Lilja Sif er magnaður sálfræðingur sem heldur úti instagram reikningnum Heilshugar (@heilshugar_)

    Eftir tveggja vikna sumarfrí dembum við okkur á dýptina varðandi hvað tengsl eru mikilvæg fyrir okkur mannverur, hvernig við erum hópdýr og hvernig það er lífsnauðsynlegt fyrir okkur að eiga náin sambönd við annað fólk. Við ræðum líka sjálfsrækt og sjálfsvinnu og auðvitað komum við inn á kerfin sem maðurinn hefur skapað sem er að buga okkur felst; kapítalismi, kynjakerfið, rasismi og nýlendustefnan.

    Bækur sem við ræðum:

    My Grandmother's Hands eftir Resmaa Menakem
    How to be an Antirasist eftir Ibram X. Kendi
    The Boy Who Was Raised as a Dog eftir Bruce D. Perry og Maia Szalavitz
    ALOK á instagram: @alokvmenon

    Bjarni Snæbjörnsson heldur úti hlaðvarpinu Mennsku.

    Hægt er að nálgast nýjustu bók Bjarna, sem heitir heitir einnig Mennska, í næstu bókabúð.

    www.bjarnisnae.com

    Instagram: bjarni.snaebjornsson

    Facebook: https://www.facebook.com/bjarniactor

    Tónlist: Axel Ingi Árnason

    Grafísk hönnun og bókakápa Emilía Ragnarsdóttir

  • For this episode I welcome the amazing humans who are creators of REC Arts Reykjavik; Chaiwe Sól Patiswa Drífudóttir (she/her), Eva Yggrasil (she/they) and Rebecca Hidalgo (she/her). They are activists, artists, teachers and so many other beautiful things are fighting continuously to make the world a better place by highlighting stories and artistry of marginalised groups

    We go over many heartfelt topics that matters dearly to all of us like inclusion, how to create a community and a safe space, the power of the arts, and what it is to feel like to truly belong.

    Please follow REC Arts Reykjavik on social media:

    Instagram: @recartsrvk
    Facebook: https://www.facebook.com/recartsrvk

    Personal IG handles:
    Chaiwe: @chaiwe_the_blaiking
    Rebecca: @ondinathequeen
    Eva: @eva.yggdrasil

    ----

    Bjarni Snæbjörnsson is the creator of the podcast Mennska

    www.bjarnisnae.com

    Instagram: bjarni.snaebjornsson
    Facebook: https://www.facebook.com/bjarniactor

    Music: Axel Ingi Árnason

    Graphic design and book cover Emilía Ragnarsdóttir

  • Í þætti vikunnar förum við Ellý Ármanns um víðan völl. Ellý þarf vart að kynna enda ein af eftirminnilegustu þulum RÚV og starfar m.a. í dag sem spákona og myndlistakona. Ég var svo spenntur að kynnast Ellý í gegnum þetta samtal og hér förum við í fullkomið flæði þar sem við ræðum þakklæti, lærdóm lífsins, listina, litlu börnin innra með okkur, leiðir til heilunar og margt margt fleira.

    Ellý á instagram: ellyarmannsdottir

    -----

    Bjarni Snæbjörnsson heldur úti hlaðvarpinu Mennsku

    www.bjarnisnae.com

    Instagram: bjarni.snaebjornsson

    Tónlist: Axel Ingi Árnason

    Grafísk hönnun og bókakápa Emilía Ragnarsdótti

  • María Thelma (hún) er mögnuð leikkona sem hefur komið víða við á sinni stuttu starfsævi; skrifað og leikið í sínum eigin einleik, leikið í Þjóðleikhúsinu og mörgum sjónvarpsþáttum og fengið tilnefningar til Grímunnar.

    Í þætti vikunnar ræðum við á dýptina um list leikarans, um stóra samhengi lista, fjölbreytileika og hvað það skiptir miklu máli að eiga dýnamískar fyrirmyndir. Við förum yfir hvað það þýðir að standa með sjálfri sér og hvernig lífið og listin eru í raun últramaraþon.

    María Thelma á instagram: mariathelma93

    ---

    Bjarni Snæbjörnsson heldur úti hlaðvarpinu Mennsku

    www.bjarnisnae.com

    Instagram: bjarni.snaebjornsson

    Tónlist: Axel Ingi Árnason

    Grafísk hönnun og bókakápa Emilía Ragnarsdóttir

  • Ugla er mögnuð kona sem hefur stigið fast til jarðar varðandi réttindi trans fólks frá unga aldri. Í þætti vikunnar segir hún okkur frá sögu sinni og hvernig hún datt inn í aktívisma. Við ræðum einnig stöðuna í dag í réttindamálunum og hvernig við þurfum að passa upp á það á hverjum degi að sjálfsögð mannréttindi okkar séu ekki tekin af okkur.

    Ugla á instagram: uglastefania
    ----

    Bjarni Snæbjörnsson heldur úti hlaðvarpinu Mennsku

    www.bjarnisnae.com

    Instagram: bjarni.snaebjornsson

    Tónlist: Axel Ingi Árnason

    Grafísk hönnun og bókakápa Emilía Ragnarsdóttir




  • Ingileif Friðriksdóttir er mögnuð kona sem framkvæmir hugmyndir sínar og hefur því komið víða við, t.d. sem aktivisti, framleiðandi og höfundur sjónvarpsefnis, áhrifavaldur, fjölmiðlakona og margt margt fleira. Fyrir stuttu gaf hún út sína fyrstu skáldsögu sem nefnist Ljósbrot sem er mjög spennandi og grípandi bók sem hverfist um ástir kvenna.

    Í þættinum ræðum við að sjálfsögðu um hinseginleikann, mikilvægi fyrirmynda, hvernig það er að skrifa heila bók, meðvirkni okkar, tilfinningagreind og hvernig við höfum lært að treysta flæðinu í lífinu.

    Hér er hægt að finna Ingileif á instagram: ingileiff
    Svo er það að sjálfsögðu hinseginleikinn á instagram: hinseginleikinn

    Hér er hægt að kaupa bókina Ljósbrot: https://www.salka.is/collections/nyjustu-baekurnar/products/ljosbrot

    ----


    Bjarni Snæbjörnsson heldur úti hlaðvarpinu Mennsku

    www.bjarnisnae.com

    Instagram: bjarni.snaebjornsson

    Tónlist: Axel Ingi Árnason

    Grafísk hönnun og bókakápa Emilía Ragnarsdóttir

  • Bjarki Steinn (hann) er ein af þessum manneskjum sem kemur inn í lífið manns og það er eins og við höfum alltaf þekkst. Hann er einstök fyrirmynd, opin og kærleiksrík sál sem segir mér frá lífi sínu og lærdóm í gegnum heilunarvinnu. Við ræðum hugvíkkandi efni, hinseginleikann, óttann, skömmina og mikilvægi þess að taka fagnandi á móti öllum tilfinningum okkar.

    Bjarki Steinn á instagram: https://www.instagram.com/bjarki_p?igsh=MXRuNjRmMHVjOTE4Nw==

    Bjarni Snæbjörnsson heldur úti hlaðvarpinu Mennsku

    www.bjarnisnae.com

    Instagram: bjarni.snaebjornsson

    Tónlist: Axel Ingi Árnason

    Grafísk hönnun og bókakápa Emilía Ragnarsdóttir

    --
    Eins og hlustendur taka eftir þá eru engar auglýsingar í Mennsku og ég vil gjarnan halda því þannig. Ef einstaklingar eða fyrirtæki vilja styrkja hlaðvarpið þá býð ég upp á valkvæða millifærslu þar sem þið ráðið upphæðinni. Hægt er að biðja um greiðslukvittun með því að senda mér skilaboð hér og taka fram kennitölu einstaklings / fyrirtækis: https://www.bjarnisnae.com/contact-me
    Vinsamlegast skrifið "hlaðvarp" í skýringu á millifærslu.
    kt: 0707785139
    rn: 0111-26-269483
    Með fyrirfram þökk, Bjarni

  • Hulda Tölgyes er sálfræðingur, rithöfundur og mögnuð kona. Í þættinum eigum við dásamlegt samtal um fjöldamörg málefni sem við elskum bæði, t.d. partavinnu, triggera, leiðir til að koma okkur í jafnvægi og hvernig við getum hlúð að litlu börnunum innra með okkur. Við ræðum auðvitað líka þriðju vaktina, feðraveldið og hvernig við getum hjálpað hvort öðru og börnunum okkar að upplifa að þau tilheyri.

    Vefsíða: www.thridja.is
    Instagram: hulda.tolgyes

    Vefsíðan sem Bjarni segir frá í sinni djúpdáleiðsluvinnu: www.tobemagnetic.com
    ----

    Bjarni Snæbjörnsson heldur úti hlaðvarpinu Mennsku

    www.bjarnisnae.com

    IG: bjarni.snaebjornsson

    Tónlist: Axel Ingi Árnason

    Grafísk hönnun og bókakápa Emilía Ragnarsdóttir

  • ** Varúð váhrif / Trigger Warning. Í samtalinu við Hafstein eru mörg erfið málefni rædd eins og einelti, kynferðisofbeldi gegn börnum, nauðgun og sjálfsvígshugsanir. **

    -----

    Hafsteinn Þórólfsson (hann) er söngvari, tónskáld og einstakur listamaður. Í þætti vikunnar segir hann okkur frá mögnuðu heilunarferðalagi sem hann þurfti að fara í vegna mikilla áfalla sem hafa dunið á honum í gegnum ævina. Við ræðum leiðir til sjálfsástar og heilunar sem og um skömmina, hinseginleikann, ástina, húmorinn og mikilvægi þess að eiga gott bakland og að leita sér hjálpar.

    Þátturinn er óvenjulega langur að þessu sinni því frásögn Hafsteins er flókin, margslungin og marglaga.
    ---

    Bjarni Snæbjörnsson heldur úti hlaðvarpinu Mennsku

    www.bjarnisnae.com

    IG: bjarni.snaebjornsson

    Tónlist: Axel Ingi Árnason

    Grafísk hönnun og bókakápa Emilía Ragnarsdóttir

    Ljósmynd af Hafsteini: Sunday & White Studio

  • Þorbjörg Þorvaldsdóttir (hún) er verkefnastýri hjá Samtökunum 78 og hefur verið ósérhlífin síðustu ár að berjast fyrir auknum mannréttindum ólíkra jaðarhópa. Í þættinum ræðum við um muninn á hatursorðræðu og hættulegri orðræðu. Ég læri um gagnvirka orðræðu og hvernig það er hjálplegt að manneskjuvæða hvort annað. Samtalið var mikill innblástur og minnti mig á hvernig mannréttindabarátta er maraþon og hvernig það gengur alltaf betur þegar við leggjum öll eitthvað að mörkum.
    -----

    Bjarni Snæbjörnsson heldur úti hlaðvarpinu Mennsku

    www.bjarnisnae.com

    IG: bjarni.snaebjornsson

    Tónlist: Axel Ingi Árnason

    Grafísk hönnun og bókakápa Emilía Ragnarsdóttir

  • Gestur vikunnar er Guðbrandur Árni Ísberg sem er reynslumikill sálfræðingur og höfundur Hann hefur skrifað bækur bæði um NÁNDINA og SKÖMMINA og er þessi misserin að skrifa nýja bók um ÁSTINA. Þetta var svo skemmtilegt og lærdómsríkt samtal þar sem við fórum á dýptina og ég lærði mikið um hvernig skömmin er í raun til staðar til að hjálpa okkur, þó hún sé oftast óþægileg.

    Ég mæli einnig með samtalinu sem Guðbrandur átti við Þorstein V. Einarsson hjá hlaðvarpinu Karlmennskunni árið 2022 þar sem hann ræðir einnig náið um skömmina. Hér er hlekkur á þann þátt: https://open.spotify.com/episode/065OXyeuzaYbXOcgHLuoDd?si=efd47eeae6824339

    ----

    Bjarni Snæbjörnsson heldur úti hlaðvarpinu Mennsku
    www.bjarnisnae.com

    IG: bjarni.snaebjornsson

    Tónlist: Axel Ingi Árnason

    Grafísk hönnun og bókakápa Emilía Ragnarsdóttir