Ef þú þarft að gera breytingar á bókuninni, eins og að bæta við viðbótargesti eða fjarlægja gest sem kemst ekki í ferðina, getur þú gert það.
Kynntu þér hvernig þú bætir gestum við bókun þína til að bjóða tilteknum gestum úr ferðahóp þínum að slást með í för.
Heildarverð fyrir ferð getur breyst með nýjum gestafjölda en það fer eftir verðlagningu hjá gestgjafanum þínum. Ef gestgjafinn fer fram á gjald fyrir viðbótargesti er viðbótarkostnaðurinn í flestum tilvikum skuldfærður á sama greiðslumáta og þú notaðir um leið og gestgjafinn samþykkir breytingabeiðnina.
Gestir þurfa að ganga frá viðbótargreiðslu fyrir suma greiðslumáta innan tveggja sólarhringa frá því að gestgjafinn samþykkir beiðni um breytingu á ferð.
Ef þú átt rétt á endurgreiðslu verður hún send með sama greiðslumáta og þú notaðir við bókun. Það ræðst af banka þínum eða fjármálastofnun hve langur tími líður þar til fjárhæðin berst þér. Frekari upplýsingar um meðalúrvinnslutíma.
Þegar þú hefur sent beiðni um breytingu á ferð til að bæta gestum við er mikilvægt að bíða eftir samþykki gestgjafans áður en gestirnir mæta. Gestgjafinn þarf fyrst að staðfesta að hann geti tekið á móti öðrum gestafjölda.
Þegar gestgjafinn hefur samþykkt breytinguna færðu staðfestingu og bókunarupplýsingunum verður breytt í samræmi við breytingarnar.
Ef þú sendir inn beiðni um breytingu á ferð og gestgjafinn hefur ekki svarað henni getur þú prófað að senda skilaboð til að minna viðkomandi á að fara yfir beiðnina.
Ekki er hægt að flytja bókun á einhvern annan. Ef þú kemst ekki í ferð þarftu að afbóka og biðja hinn gestinn um að bóka aftur.
Afbókunarkostnaður gæti átt við en það fer eftir afbókunarreglu gestgjafans. Auk þess getur kostnaður vegna endurbókaðrar gistingar verið annar en vegna upphaflegu bókunarinnar.
Þú gætir þurft að hafa samband við hótelið til að breyta bókuninni fyrir suma hótelgistingu.