Tillögur birtast þegar slegið er inn í leitarreitinn. Notaðu örvarnar upp og niður við yfirferð. Ýttu á „enter“ til að velja. Ef nokkur orð eru valin saman eru þau notuð sem leitarstrengur. Ef tillagan er hlekkur opnast sú síða í vafranum.
Við sendum yfirleitt útborganir um sólarhring eftir að gestur innritar sig. Dvalarlengd gests, úrvinnslutími útborgunarmáta þíns og hvort þú sért nýr gestgjafi eða ekki ræður því hins vegar hvenær útborgunin berst þér.
Útborgun til þín vegna gistingar gests er gistináttaverð hjá þér auk valfrjálsra aukagjalda (eins og ræstingagjalds) að frádregnu þjónustugjaldi gestgjafa.
Ef gestur afbókar (annaðhvort fyrir ferð eða meðan á henni stendur) fær hann sjálfkrafa endurgreitt samkvæmt afbókunarreglunni hjá þér, með nokkrum undantekningum.
Airbnb gæti haldið eftir staðgreiðsluskatti vegna þess að þú hefur ekki sent inn upplýsingar um skattgreiðanda. Athugaðu hvað annað gæti tafið útborgun til þín.
Þegar mögulegar tekjur gestgjafa eru hærri en heildarupphæð allra útborgana til samgestgjafa, verður samgestgjöfum greitt fyrst og eftirstöðvarnar fara til gestgjafans.
Útborganir sem deilt er með samgestgjafa eru háðar ákveðnum svæðsisbundnum takmörkunum sem fara eftir staðsetningu þinni, samgestgjafans og eignarinnar.
Gestgjafar sem taka þátt í gestgjafaþjónustu íbúa geta deilt útborgunum með samgestgjöfum í Bandaríkjunum en ákveðnar takmarkanir eiga þó við. Útborganir til samgestgjafa eru ekki studdar í gestgjafaþjónustu íbúa í Bretlandi og Kanada.