Næring
Næring er það þegar frumum og lífverum er gefið nauðsynlegt efni (í formi matar) til þess að lifa af. Hægt er að koma í veg fyrir og draga úr mörgum heilsuvandamálum með hollustufæði.
Þessi grein þarfnast hreingerningar svo hún hæfi betur sem grein hér á Wikipediu. |
Heimildir skortir fyrir staðhæfingum í þessari grein. Ef þú vilt bæta við heimild vinsamlegast bættu þeim við undir nýrri fyrirsögn („Heimildir“) eða skildu eftir athugasemd á spjallsíðunni. |
Mataræði lífverunnar er það sem hún étur og ræðst af því sem lífverunni líkar vel við að éta. Næringarráðgjafar eru einstaklingar sem sérhæfa sig í næringarfræði, áætlanagerð máltíða, efnahagsmálum, undirbúningi og svo framvegis. Þeir eru útlærðir til að gefa einstaklingum (bæði heilbrigðum og veikum) og samtökum örugg ráð um hvað er best að borða.
Slæmtt mataræði getur verið hættulegt heilbrigði einstaklingsins og valdið skortsjúkdómum eins og skyrbjúg, taugakröm og prótínkröm og sjúkdómum sem ógna heilbrigði eins og offitu og efnaskiptaheilkennum auk þess þrálátra kerfabundinna sjúkdóma eins og hjarta- og æðasjúkdóma, sykursýki og beinþynningu.
Næringarefni
breyta- Tegund næringaefna
- undirstöðufrumefni
- snefilefni
Höfuðtegundir næringarefnanna eru sjö: Fita, kolvetni, prótín, steinefni, trefjaefni, vatn og vítamín. Snefilefni eru vítamín og steindir.
Undirstöðufrumefnin (fyrir utan trefjaefni og vatn) gefa orku sem er mæld með Júlum eða kílókaloríum. Kolvetni og prótín gefa 17 kJ (4 kkal) af orku á hvert gramm og fitur gefa 37 kJ (9 kkal) á hvert gramm.[1] Vítamín, steinefni, trefjar og vatn gefa enga orku en eru öll nauðsynleg af öðrum ástæðum.
Kolvetnis- og fitusameindir samanstanda af kolefnis-, vetnis- og súrefnisfrumeindum. Kolvetni geta verið einfaldar einsykrur (glúkósi, frúktósi og galaktósi) eða flóknar fjölsykrur (mjölvi). Fitur eru þríglýseríð gerð úr fitusýrueinliðum festum við glýseról. Sumar en ekki allar fitusýrur eru nauðsynlegar í mataræðinu, það er að segja að þær geti ekki myndast í líkamanum. Prótínsameindir innihalda niturfrumeindir. Einliður prótíns sem innihalda nitur eru amínósýrur, á meðal þeirra eru sumar nauðsynlegar amínósýrur. Þær eru ekki notaðar í efnaskiptum. Ef þær eru notaðar sem orka íþyngir losun nitursins nýrum.
Önnur snefilefni eru andoxunarefni (e. antioxidants) og jurtaefni (e. phytochemicals).
Flestar matvörur innihalda blöndu allra næringarefna. Maður þarf sum næringarefni reglulega en önnur öðru hverju. Ójafnvægi næringarefna geta valdið heilsubresti (bæði ofgnótt eða skortur næringarefnis).
Næringarkvilli
breytaNæringarkvilli eða eldiskvilli er hvers kyns sjúkdómur sem leggst á menn (og dýr) vegna ójafnvægis í fæði, það er að segja vannæringar eða ofnæringar af einhverju tagi.
Sjúkdómar vegna næringarkvilla
breytaTengt efni
breytaTenglar
breytaHeimildir
breyta- ↑ Berg J., J.L. Tymoczko og L. Stryer, Biochemistry 5. útg. (San Francisco: W.H. Freeman, 2002): 603.
- ↑ „Geymd eintak“. Afrit af upprunalegu geymt þann 17. mars 2014. Sótt 22. ágúst 2009.