Alfred Tarski
Útlit
Vestræn heimspeki Heimspeki 20. aldar | |
---|---|
Nafn: | Alfred Tarski |
Fæddur: | 14. janúar 1901 (í Varsjá Póllandi) |
Látinn: | 26. október 1983 (82 ára) (í Berkeley Kaliforníu) |
Skóli/hefð: | Rökgreiningarheimspeki |
Helstu ritverk: | „Merkingarfræðilega hugmyndin um sannleikann og undirstöður merkingarfræðinnar“ |
Helstu viðfangsefni: | Rökfræði, málspeki |
Markverðar hugmyndir: | Merkingarfræði sannleikshugtaksins |
Áhrifavaldar: | Bertrand Russell, Kurt Gödel |
Hafði áhrif á: | Donald Davidson |
Alfred Tarski (14. janúar 1901, Varsjá Póllandi – 26. október 1983, Berkeley Kaliforníu) var pólskur rök- og stærðfræðingur. Hann var meðlimur Stærðfræðiskólans í Varsjá á millistríðsárunum og virkur stærðfræðingur í BNA eftir 1939 (þegar hann fór til Bandaríkjana). Hann skrifaði um grannfræði, rúmfræði, mælingafræði, stærðfræðilega rökfræði, mengjafræði og um undirstöður stærðfræðinar en mest um módelfræði og algebrulega rökfræði. Ævisöguritarar hans Anita Feferman og Solomon Feferman (sem lærði undir honum) rituðu að hann væri „einn af mestu rökfræðingum allra tíma“.
Tengt efni
[breyta | breyta frumkóða]Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Alfred Tarski.