Location via proxy:   [ UP ]  
[Report a bug]   [Manage cookies]                
Fara í innihald

Esteban Ocon

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Esteban Ocon
Ocon árið 2017
Fæddur
Esteban José Jean-Pierre Ocon-Khelfane

17. september 1996 (1996-09-17) (28 ára)
ÞjóðerniFrakkland Franskur
StörfFormúlu 1 ökumaður


Esteban José Jean-Pierre Ocon-Khelfane (f. 17. september, 1996) er franskur ökumaður sem keyrir fyrir Alpine liðið í Formúlu 1. Fyrsta keppni Ocon í Formúlu 1 var í Belgíska kappakstrinum árið 2016 með Manor liðinu. Það var á miðju tímabili eftir að Rio Haryanto var sagt upp hjá liðinu og Ocon kláraði tímabilið með liðinu. Síðan þá hefur Ocon keyrt Force India (2017–2019), verið varaökumaður Mercedes árið 2019, Renault (2020) og síðan Alpine frá árinu 2021. Ocon mun síðan keyra fyrir Haas liðið árið 2025 eftir að hafa gert samning við liðið.