Location via proxy:   [ UP ]  
[Report a bug]   [Manage cookies]                
Fara í innihald

Katarska karlalandsliðið í knattspyrnu

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Katarska karlalandsliðið í knattspyrnu
Merki landsliðsins
Íþróttasamband(Arabíska: الاتحاد القطري لكرة القدم) (Knattspyrnusamband Katar)
ÁlfusambandAFC
ÞjálfariFélix Sánchez
FyrirliðiHassan Al-Haydos
FIFA sæti
  Hæst
  Lægst
61 (26. október 2023)
42 (ágúst 2021)
113 (nóvember 2010)
Heimabúningur
Útibúningur
Fyrsti landsleikur
1-2 gegn Barein, (27. mars, 1970)
Stærsti sigur
15-0 á móti Bútan (3. Sept. 2015)
Mesta tap
0-5 gegn Kúveit (8. janúar 1973)

Katarska karlalandsliðið í knattspyrnu er fulltrúi Katar í knattspyrnu og er stjórnað af knattspyrnusambandi lands síns.

Knattspyrnuíþróttin barst til Katar með breskum starfsmönnum í olíuiðnaði á fimmta áratugnum. Knattspyrnusamband var stofnað í landinu árið 1960 og gekk það þremur árum síðar til liðs við FIFA. Fyrsti landsleikurinn var gegn Barein árið 1970. Fyrsta HM-forkeppnin var fyrir mótið í Argentínu 1978, þar sem Katar rak lestina í sínum riðli.

Meistarar Persaflóa og Asíu

[breyta | breyta frumkóða]

Katar átti blómaskeið í byrjun tíunda áratugarins og komst m.a. í 53ja sæti heimslistans á árinu 1993, sem lengi vel var þeirra besti árangur. Árið áður tókst Katar í fyrsta sinn að hrósa sigri á Persaflóamótinu, sem einmitt fór fram í landinu í það skiptið. Þessu velgengnistímabili lauk þó með sárum vonbrigðum í forkeppni HM 1998 þegar liðið tapaði í hreinum úrslitaleik gegn Sádiaröbum um sæti í úrslitakeppninni.

Árið 2010 var Katar mörgum að óvörum úthlutað hlutverki gestgjafa á HM 2022. Í kjölfarið hófst mikið uppbyggingartímabil þar sem fjármunum var dælt í landsliðið til að afla því reynslu og undibúa sem best fyrir mótið á heimavelli. Árið 2014 varð liðið Persaflóameistari í þriðja sinn (annar titillinn kom árið 2004) og árið 2019 varð Katar [[Asíukeppni karla í knattspyrnu |Asíumeistari]] í fyrsta sinn. Sama ár var Katar boðið að taka þátt í Copa América sem gestaþjóð. Árið 2021 voru Katarbúar svo gestalið í Norður-Ameríkukeppninni og geta því státað af því afreki að hafa keppt í þremur álfukeppnum.

Í aðdraganda mótsins í Katar var ákveðið að leikmenn landsliðsins myndu taka sér frí frá félagsliðum sínum en þess í stað vera saman í æfingabúðum svo mánuðum skipti í þeirri von að mynda öfluga liðsheild gegn umtalsvert sterkari og reyndari mótherjum.

HM á heimavelli

[breyta | breyta frumkóða]

Þann 20. nóvember 2022 hóf lið Katar leik á HM sem gestgjafaþjóð. Mótherjarnir voru Ekvador. Gestirnir höfðu talsverða yfirburði í leiknum sem lauk með 2:0 sigri þeirra og var það í fyrsta sinn í sögu HM sem heimaliðið tapar sínum fyrsta leik. Í næsta leik tóku Katarar á móti Senegal og máttu sætta sig við 3:1 tap þrátt fyrir ágæta baráttu. Úrslitin þýddu að Katar féll úr keppni þótt enn væri ein umferð eftir af riðlakeppninni. Tap fyrir Hollendingum í lokaleik urðu til þess að Katarar settu tvö óheppilegt met með því að verða fyrstu gestgjafarnir til að tapa öllum sínum leikjum á HM og jafnframt sú gestgjafaþjóð sem lauk keppni með fæst mörk skoruð.