Ronald Syme
Sir Ronald Syme (11. mars 1903 – 4. september 1989) var nýsjálenskur sagnfræðingur og fornfræðingur.
Æviágrip
[breyta | breyta frumkóða]Syme var fæddur og uppalinn á Nýja sjálandi. Hann nam franskar bókmenntir og fornfræði við háskólann í Auckland. Árin 1925 –1927 nam hann fornfræði við Oxford háskóla á Bretlandi og brautskráðist þaðan með gráðu í fornaldarsögu og heimspeki. Árið 1949 hlaut hann stöðu Camden-prófessors í fornaldarsögu við Brasenose College í Oxford og gegndi hann þeirri stöðu til starfsloka. Syme var einnig félagi á Wolfson College í Oxford frá 1970, þar sem árlegur fyrirlestur er haldinn í minningu hans.
Hann var aðlaður árið 1959. Syme hélt áfram skrifum sínum um fornfræði þar til hann lést 86 ára gamall.
Ritverk
[breyta | breyta frumkóða]Helsta rit Symes var The Roman Revolution (1939), sem var greining á rómverskum stjórnmálum í kjölfar morðsins á Júlíusi Caesar.
Syme samdi einnig ævisögu Tacitusar í tveimur bindum (1958) og rit um rómverska sagnaritarann Sallústíus (1964).