Saxland-Anhalt
Fáni Saxlands | Skjaldarmerki Saxlands |
---|---|
Upplýsingar | |
Flatarmál: | 20.446,31 km² |
Mannfjöldi: | 2,2 milljónir (2021) |
Þéttleiki byggðar: | 110/km² |
Vefsíða: | sachsen-anhalt.de Geymt 19 júlí 2011 í Wayback Machine |
Stjórnarfar | |
Forsætisráðherra: | Reiner Haseloff (CDU) |
Lega | |
Saxland-Anhalt (þýska: Sachsen-Anhalt) er áttunda stærsta sambandsland Þýskalands með 20.445 km². Það var áður fyrr hluti af víðáttumiklu landsvæði sem kallaðist Saxland. Eftir heimstyrjöldina síðari var það í Austur-Þýskalandi og varð að sambandslandi við sameiningu Þýskalands 1990. Íbúar eru tæplega 2,2 milljónir talsins (2021). Höfuðborgin er Magdeburg. Stórfljótið Saxelfur rennur í gegnum Saxland-Anhalt frá norðri til suðausturs. Vestast eru Harzfjöllin og mynda þau náttúruleg landamæri að Neðra-Saxlandi.
Lega
[breyta | breyta frumkóða]Saxland-Anhalt er austarlega í Þýskalandi og nær hvergi að sjó. Fyrir austan er Brandenborg, fyrir suðaustan er Saxland, fyrir sunnan er Þýringaland (Thüringen) og fyrir vestan er Neðra-Saxland.
Fáni og skjaldarmerki
[breyta | breyta frumkóða]Fáni Saxlands-Anhalt eru gerður úr tveimur láréttum röndum, gult að ofan og svart að neðan. Litirnir voru teknir úr skjaldarmerkinu. Fáninn var tekinn upp í fyrsta sinn 1947, en var lagður niður þegar landið var leyst upp í endurskipulagningu Austur-Þýskalands 1952. 1992, eftir sameiningu Þýskalands, var fáninn tekinn óbreyttur upp. Skjaldarmerkið samanstendur aðallega af gulum og svörtum röndum. Þvert yfir það er græn krónurönd. Í horninu eftst til hægri er svartur örn, en hann táknar Prússland. Neðst er svartur björn á borgarvirki, en hann merkir fyrrverandi fríríkið Anhalt. Skjaldarmerki þetta var tekið upp 1991, tæpu ári eftir að Saxland-Anhalt varð til sem sambandsland sameinaðs Þýskalands. Gamla skjaldarmerkið var svipað, nema hvað þar var enginn björn. Þess í stað voru þar hamar og meitill og kornax, tákn sósíalimans.
Orðsifjar
[breyta | breyta frumkóða]Orðið Sachsen (Saxland) er upprunnið af germanska ættbálknum saxa. Orðið saxi er dregið af gamla germanska orðinu sahs, sem merkir sverð eða langur hnífur (sbr. að saxa á íslensku). Anhalt var fyrst til sem kastalavirki og merkir einfaldlega stað þar sem maður stoppar (sbr. anhalten = að stoppa). [1]
Söguágrip
[breyta | breyta frumkóða]- Allt til 17. aldar var landsvæðið hluti af erkibiskupsdæminu Magdeburg, en þá varð það hluti af hertogadæminu Saxland, sem seinna varð að konungsríki.
- 1945 hertóku bandarískar og sovéskar hersveitir hertogadæmið og var það innan sovéska hernámssvæðisins.
- 1947 var Saxland-Anhalt stofnað sem sambandsland úr hertogadæminu Saxland og fríríkinu Anhalt.
- 1952 leysti austurþýska stjórnin sambandslandið upp í héruðin Halle og Magdeburg.
- 1990 var Þýskaland sameinað og héruðin Halle og Magdeburg sameinuð á ný í sambandslandið Saxland-Anhalt.
Borgir
[breyta | breyta frumkóða]Stærstu borgir Saxlands-Anhalt:
Röð | Borg | Íbúar | Ath. |
---|---|---|---|
1 | Halle | 233 | |
2 | Magdeburg | 230 | Höfuðborg sambandslandsins |
3 | Dessau-Rosslau | 88 | |
4 | Wittenberg | 47 |
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ Geographische Namen in Deutschland. Duden. 1993. Bls. 231 og 39.
Heimildir
[breyta | breyta frumkóða]Fyrirmynd greinarinnar var „Sachsen-Anhalt“ á þýsku útgáfu Wikipedia. Sótt júní 2010.