Stýfing
Útlit
Stýfing er hugtak í stærðfræði sem notað er um það þegar fjölda tölustafa hægra megin við kommu er fækkað, með því einfaldlega að sleppa þeim stöfum sem eru þar fyrir aftan.
Dæmi
[breyta | breyta frumkóða]Ef talan 5,1274 er stýfð með tveimur aukastöfum fæst 5,12. Stöfum fyrir aftan er einfaldlega sleppt. Þetta er ekki jafngilt því að námunda að tveim aukastöfum, en í því tilfelli fæst talan 5,13.