Location via proxy:   [ UP ]  
[Report a bug]   [Manage cookies]                
Fara í innihald

Umhverfis- og auðlindaráðuneyti Íslands

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið
Stofnár 1990 [1]
Ráðherra Guðmundur Ingi Guðbrandsson[2]
Ráðuneytisstjóri Sigríður Auður Arnardóttir [3]
Fjárveiting 9.811,5 2015
Staðsetning Skuggasund 1
101 Reykjavík
Vefsíða

Umhverfis- og auðlindaráðuneyti Íslands eða umhverfis- og auðlindaráðuneytið er eitt af 8 ráðuneytum Stjórnarráðs Íslands. Æðsti yfirmaður er umhverfis- og auðlindaráðherra og æðsti embættismaður þess er ráðuneytisstjóri.

Samkvæmt reglugerð um Stjórnarráð Íslands[4] fer ráðuneytið með þau mál er varða:

  • Náttúruvernd, þ.m.t. landgræðslu, vernd vistkerfa og líffræðilegrar fjölbreytni og erfðaauðlinda, þjóðgarða, aðra en Þingvallaþjóðgarð, og friðlýst svæði.
  • Friðunar- og uppgræðsluaðgerðir á sviði gróður- og skógverndar, skógrækt, aðra en landshlutabundna og nytjaskóga, og fyrirhleðslur.
  • Rannsóknir á sviði umhverfismála og umhverfisvöktun, sem ekki er lögð til annars ráðuneytis.
  • Mengunarvarnir, meðhöndlun úrgangs, hollustuhætti, heilbrigðiseftirlit, eiturefni og hættuleg efni.
  • Skipulagsmál, mat á umhverfisáhrifum og gerð landnýtingaráætlana.
  • Byggingarmál og brunavarnir.
  • Veðurþjónustu, varnir gegn ofanflóðum, fjarkönnun og mælingar og rannsóknir á vatnafari landsins.
  • Dýravernd og stjórnun veiða á villtum fuglum og villtum spendýrum öðrum en sjávarspendýrum.
  • Loftslagsvernd.
  • Landmælingar og kortagerð.

Sjá einnig

[breyta | breyta frumkóða]

Tilvísanir

[breyta | breyta frumkóða]
  1. „Um ráðuneytið“. Sótt 8. apríl 2010.
  2. „Sigurður Ingi Jóhannsson umhverfis- og auðlindaráðherra“. Sótt 11. júní 2014.
  3. „Starfsmenn“. Sótt 11. júnlí 2014.
  4. „Reglugerð um Stjórnarráð Íslands“. Sótt 21. febrúar 2010.