Location via proxy:   [ UP ]  
[Report a bug]   [Manage cookies]                
Fara í innihald

Benediktsregla

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Útgáfa frá 9. mars 2013 kl. 03:42 eftir Addbot (spjall | framlög) Útgáfa frá 9. mars 2013 kl. 03:42 eftir Addbot (spjall | framlög) (Bot: Flyt 54 tungumálatengla, sem eru núna sóttir frá Wikidata á d:q131132)
(breyting) ← Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)

Benediktsregla er stærsta og fjölmennasta klausturreglan í kaþólskum sið og er kennd við Benedikt frá Núrsíu, sem stofnaði hana á sjöttu öld e.Kr. á Ítalíu. Elst og þekktast þessara klaustra er Monte Cassino, sem Benedikt stofnaði árið 529.

Benediktsklaustur, bæði munka- og nunnuklaustur, voru síðan stofnuð um alla Evrópu á næstu öldum og seinna um allan heim.

Benediktsklaustur á Íslandi í kaþólskum sið voru Þingeyraklaustur (1133), Munkaþverárklaustur (1155) og Hítardalsklaustur (1155), en það síðastnefnda var skammlíft. Nunnuklaustrin á Kirkjubæ (1186) og Reynistað (1295) voru bæði Benediktsklaustur.