Location via proxy:   [ UP ]  
[Report a bug]   [Manage cookies]                
Fara í innihald

Pottaska

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Útgáfa frá 31. október 2015 kl. 03:37 eftir Sweepy (spjall | framlög) Útgáfa frá 31. október 2015 kl. 03:37 eftir Sweepy (spjall | framlög) (bolded)
(breyting) ← Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)

Pottaska (K2CO3) er efnasamband Kalíns og karbónats. Pottaska hefur frá fornu fari verið notuð til að búa til gler og sápu og í tilbúinn áburð. Nafnið vísar til þess að efnið var unnið úr viðarösku. Pottaskan hefur þrjú nöfn samkvæmt gömlum bókum: Alkali, lútarsalt og pottaska.

Pottaska er víða í gömlum uppskriftum. Stundum hefur hún verið notuð í stað lyftidufts. Einnig var hægt að nota hana til að koma í veg fyrir að mjólk ysti, eða eins og segir í gömlu húsráði:

Ef mjólk ysti við suðu, var látið dálítið af hreinsaðri pottösku í mjólkina og hún soðin nokkra stund og hrært vel í pottinum, þá losnaði draflinn í sundur og mjólkin varð jafngóð aftur.

  Þessi efnafræðigrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.