Location via proxy:   [ UP ]  
[Report a bug]   [Manage cookies]                
Fara í innihald

Þerney

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Þerney.

Þerney er eyja á Kollafirði. Þerney er nefnd eftir kríunni, sem fyrrum var nefnd „þerna“. Hún er um 0,54 ferkílómetrar að stærð.

Þerney er notuð sem sumarleyfisstaður fyrir dýr sem Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn hefur á sínum vegum. Þangað fara þau í tveimur hópum, fyrri helmingurinn um miðjan júlí og seinni helmingurinn miðjan ágúst. Reynt er að miða við að dýrin fái jafn langt frí og starfsfólk í garðinum eða um mánuð.[1]

Í Þerney var kirkja á 13. öld. Á 18. öld var leiguliði bóndans verðlaunaður með konungsúrskurði fyrir garðhleðslu í eyjunni. Danskar kýr sem komu til Íslands 4. júlí 1933 voru fluttar til Þerneyjar í einangrun og einnig voru fluttar þangað karakúlkindur þann 10. júlí sama ár. Skömmu seinna fór að koma fram hringskyrfi á nautgripunum og breiddist sýkin út í nautgripi bóndans þar og sýktist fólk líka. Öllu búfénu var slátrað nema einum kálfi.

Þerney er ásamt Lundey, Akurey og Engey á Náttúruminjaskrá.

Tilvísanir

[breyta | breyta frumkóða]
  1. „Engey, Akurey, Þerney og Lundey“. Reykjavíkurborg. Sótt 16.12.2022.
  Þessi landafræðigrein sem tengist Íslandi er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.