Location via proxy:   [ UP ]  
[Report a bug]   [Manage cookies]                
Fara í innihald

Þreskivél

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Nútíma þreskivél
Drónamyndband af þreskivél 2022

Þreskivél er vél sem notuð er við uppskerustörf. Vélin klippir kornstöngla, hristir kornið úr og sigtar það. Vélin færir svo stönglana (hálminn) og skilar þeim út sem görðum eða kögglum. Fremst á vélinni er ljár sem klippir kornstönglana og búnaður sem færir stönglana upp í vélina. Þar er þreskibúnaður með þreskli sem slær korn úr öxunum. Þau falla svo í gegnum þreskihvelfu og aðskiljast þannig frá hálminum. Hálmurinn er svo hristur aftur til að ná öllu korni úr og hann fellur svo aftan úr vélinni. Korninu er safnað á kornplötu og fer þaðan í gegnum sáld með loftstreymi frá viftu sem blæs svo hálmleifum, rusli og kuski aftan úr vélinni. Fullhreinsað korn er svo flutt í korngeymi. Þreskivélar eru notaðar við uppskeru á hveiti, höfrum, rúgi, byggi, maís, sojabaunum og hör.

Skýringarmynd yfir þreskivél
Skýringarmynd yfir þreskivél
Skýringar
1 Sópvinda 11 Efra sáld
2 Ljár 12 Neðra sáld
3 Færisnigill 13 hratsnigill
4 Færistokkur 14 hratvinnsla?
5 Steinafella 15 Kornsnigill
6 Þreskivölur 16 Korngeymir
7 Þreskihvelfa 17 Hálmsaxari
8 Hálmhristill 18 Stýrishús
9 Kornplata 19 Hreyfill
10 Vifta 20 Hlíf 21 Hálmvinda
  Þessi landbúnaðargrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.