Baskneska
Útlit
Baskneska Euskara | ||
---|---|---|
Málsvæði | Baskaland (sem er í Spánni og Frakklandi) | |
Heimshluti | Suðvestur Evrópa | |
Fjöldi málhafa | 1.033.900 | |
Ætt | Einangrað | |
Opinber staða | ||
Opinbert tungumál |
Baskaland | |
Stýrt af | Euskaltzaindia | |
Tungumálakóðar | ||
ISO 639-1 | eu
| |
ISO 639-2 | baq
| |
SIL | BAQ
| |
ATH: Þessi grein gæti innihaldið hljóðfræðitákn úr alþjóðlega hljóðstafrófinu í Unicode. |
Baskneska (baskneska: Euskara) er tungumál sem talað er í Baskalandi. Baskaland er svæði á Norður-Spáni og Suðvestur-Frakklandi. Baskar eru að reyna að verða sjálfstætt ríki en þeir hafa ekki hlotið sjálfstæði frá Spáni og Frakklandi. Menning Baska er frábrugðin menningu Frakka og Spánverja. Til dæmis er baskneska tungumálið eitt sinnar tegundar og líkist hvorki spænsku, frönsku né öðrum rómönskum tungumálum. Baskneska tungumálið tilheyrir ekki neinni tungumálaætt og er því ekki indóevrópskt mál eins og flest tungumál sem töluð eru nálægt Baskalandi. Elstu textar er frá 1500. Mállýskur eru 8 og innihalda mörg tökuorð úr nálægum málum eins og spænsku, frönsku, latínu.
Nokkrar setningar og orð
[breyta | breyta frumkóða]- Bai = Já
- Ez = Nei
- Kaixo! = Halló!
- Agur! = Bless
- Ikusi arte = Við sjáumst!
- Eskerrik asko! = Takk
- Egun on = Góðan dag(inn)
- Arratsalde on = Gott kvöld
- Gabon = Góða nótt
- Mesedez = Gjörðu svo vel
- Barkatu = Afsakið, fyrirgefðu
- Zer Moduz = Hvað segirðu?
- Zorionak = til hamingju
- Zu = þú
- Ilargia = tungl
- Argia = ljós
- Neska = stelpa
- Mutil = strákur
- Oso ondo = mjög gott/vel
Sjá einnig
[breyta | breyta frumkóða]Tenglar
[breyta | breyta frumkóða]- Útvarp á Basknesku Geymt 13 október 2006 í Wayback Machine
- Vísindavefurinn: Hvaðan kemur baskneska?