Location via proxy:   [ UP ]  
[Report a bug]   [Manage cookies]                
Fara í innihald

Mombasa

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Fílstennurnar í Mombasa.

Mombasa er önnur stærsta borg Kenía á eftir Naíróbí. Hún stendur á Mombasaeyju við strönd Indlandshafs í suðurhluta landsins. Íbúar Mombasa eru rúmlega 915 þúsund talsins (2009). Kilindinihöfn er mikilvæg höfn sem var opnuð 1896 þegar vinna hófst við Úgandajárnbrautina sem liggur frá Mombasa til Úganda. Mombasaflugvöllur er alþjóðlegur flugvöllur.

  Þessi Afríkugrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.