Silicon Valley
Silicon Valley eða Kísildalurinn er nafn sem er notað yfir landsvæði við syðri hluta San Francisco-flóa í Norður-Kaliforníu, Bandaríkjunum. Á þessu svæði eru margir bæir. Nafngiftin vísaði í upphafi til mikillar framleiðslu svæðisins á kísilflögum en varð að lokum samnefnari fyrir allan hátækniiðnaðinn á svæðinu.
Heitið nær yfir norðurhluta Santa Clara Valley og nærliggjandi svæði á suðurhluta San Francisco-skagans.
Nafnið
[breyta | breyta frumkóða]Blaðamaðurinn Don Hoefler notaði orðið fyrstur manna Silicon Valley 1971 sem fyrirsögn í greinaröð í tímaritinu Electronic News. Silicon („kísill“) vísar til mikils iðnaðar í kringum hálfleiðara og tölvur á svæðinu, en Valley („dalur“) vísar til Santa Clara Valley.
Heitið er nú líka notað um aðliggjandi svæði við San Francisco-flóa, þangað sem tölvuiðnaðurinn hefur flutt starfsemi sína.
Á 8. og 9. áratugnum var algengt að blaðamenn vissu ekki hvernig ætti að stafa silicon og skrifuðu það gjarnan silicone, en það er efni sem notað er í brjóstastækkanir.
Saga svæðisins
[breyta | breyta frumkóða]Á fyrri hluta 20. aldar var lítið um hátækniiðnað á svæðinu. Margir mjög góðir háskólar voru í grenndinni en nemendur voru jafnan fljótir að flytjast í burtu eftir að þeir höfðu lokið námi. Frederick Terman prófessor við Stanford-háskóla vildi breyta þessu. Hann smíðaði áætlun sem miðaði að því að útvega nemendum áhættufjármagn gegn því að þeir yrðu um kyrrt á svæðinu. Þetta gekk vel og tveir nemendur skólans, William Hewlett og David Packard, stofnuðu fyrsta hátæknifyrirtæki svæðisins, Hewlett Packard árið 1939.
Árið 1951 var Stanford Research Park settur á fót, röð lítill iðnaðarbygginga sem voru leigðar á mjög lágu verði til tæknifyrirtækja. Árið 1954 var starfsmönnum fyrirtækja gert kleift að öðlast framhaldsmenntun meðfram námi.
Árið 1956 flutti William Shockley í bæinn Mountain View í Silicon Valley. Hann hafði verið einn af þeim sem fundu upp smárann þegar hann vann hjá Bell Labs árið 1953. Shockley stofnaði fyrirtækið Shockley Semiconductor Laboratory. Með tímanum þjáðist Shockley í æ ríkara mæli af móðursýki og beindist hún aðallega gegn starfsmönnum hans. Árið 1957 hættu 8 af færustu verkfræðingum hans og stofnuðu Fairchild Semiconducor.
Sama sagan endurtók sig nokkrum sinnum: verkfræðingar misstu stjórn á fyrirtækjum sínum og starfsmenn þeirra stofnuðu ný fyrirtæki. Þannig mynduðust út frá fyrirtækinu Fairchild Semiconductor meðal annars fyritækin AMD, Signetics, National Semiconductor og Intel.
Í byrjun 8. áratugarins voru mörg hálfleiðaraframleiðslufyrirtæki á svæðinu, tölvufyrirtæki sem notuðust við afurður þeirra fyrrnefndu og hugbúnaðarfyrirtæki sem þjónuðu báðum aðilum. Mikið framboð var af ódýru iðnaðarhúsnæði. Vöxturinn var að mestu fjármagnaður með áhættufjármagni og í almennu hlutafjárútboði Apple tölvufyrirtækisins árið 1980 náði framboð fjármagns hámarki.
Háskólar
[breyta | breyta frumkóða]Fjórir háskólar eru staðsettir í Silicon Valley.
Nokkrir aðrir háskólar eru ekki staðsettir í Silicon Valley en hafa haft þónokkur áhrif á svæðið, m.a. með því að stunda rannsóknir sem fyrirtækin hafa nýtt sér og útskrifað starfsfólk sem hafa síðan hafið störf hjá fyrirtækjum í Silicon Valley.
- California State University, East Bay
- University of California, Davis
- University of California, Berkeley
- University of California, Santa Cruz
Borgir og bæir
[breyta | breyta frumkóða]Í Silicon Valley eru ýmsar borgir og bæir. Í stafrófsröð eru þetta:
- Campbell
- Cupertino
- Fremont
- Los Altos
- Los Gatos
- Menlo Park
- Mountain View
- Milpitas
- Newark
- Palo Alto
- Redwood City
- San Jose
- Santa Clara
- Saratoga
- Sunnyvale
- Union City
Þekkt fyrirtæki í Silicon Valley
[breyta | breyta frumkóða]Meðal þeirra fyrirtækja sem nú starfa í Silicon Valley eru:
- Adobe Systems
- Advanced Micro Devices
- Agilent Technologies
- Altera
- Apple
- Applied Materials
- BEA Systems
- Cadence Design Systems
- Cisco Systems
- DreamWorks Animation
- eBay
- Electronic Arts
- Hewlett-Packard
- Intel
- Intuit
- Juniper Networks
- Maxtor
- National Semiconductor
- Network Appliance
- NVIDIA Corporation
- Oracle Corporation
- Siebel Systems
- Sun Microsystems
- Symantec
- Synopsys
- Varian Medical Systems
- Xilinx
- Yahoo!
Silicon útbreiðslan
[breyta | breyta frumkóða]Yfirvöld á ýmsum stöðum víðsvegar um heiminn hafa tekið upp á því að bæta silicon við nafn svæðis til að skapa tengingu við Silicon Valley, laða að fjárfesta og efla hátækniiðnaðinn.
- Brazilian Silicon Valley - Campinas, Brasilíu
- Cwm Silicon - Wales, Bretlandi
- Mexican Silicon Valley - Jalisco, Mexico
- Silicon Valley North - Kanata, Ontario, Kanada og Ottawa, Kanada
- Silicon Valley Indlands - Bangalore, Indlandi
- Silicon Valley Svíþjóð - Kista, Svíþjóð
- Silicon Valley Evrópu - Dublin, Írlandi
- Silicon Alley - New York,
- Silicon Alley - Pink Lane, Newcastle upon Tyne, Bretlandi
- Silicon Fen - Cambridge, England
- Silicon Forest - Portland, Oregon
- Silicon Glen - Skotlandi
- Silicon Gulf - Davao, Filippseyjum
- Silicon Hills - Austin, Bandaríkjunum
- Silicon Sentier - Frakklandi
- Silicon Wadi - Ísrael