Denver Nuggets
Denver Nuggets er körfuknattleikslið frá borginni Denver sem spilar í NBA-deildinni. Liðið var stofnað sem Denver Larks árið 1967 en breytti nafni sínu í Denver Rockets fyrir fyrsta tímabil sitt í ABA-deildinni. Liðið lék til úrslita í ABA á síðasta tímabili deildarinnar en laut í lægra haldi fyrir New York Nets. Við sameiningu ABA og NBA árið 1976 fluttist Nuggets yfir í NBA-deildina.[1]
Árið 2023 komust Nuggets fyrst í úrslit NBA deilarinnar þar sem liðið lagði Miami Heat að velli og vann sinn fyrsta meistaratitil. Bestu leikmenn Nuggets það árið voru Serbinn Nikola Jokić og Kanadamaðurinn Jamal Murray.[2][3]
Sex leikmenn hafa fengið treyju sýna hengda upp í rjáfur á heimavelli Nuggets en það eru þeir Alex English, Fat Lever, David Thompson, Byron Beck, Dan Issel og Dikembe Mutombo ásamt þjálfaranum Doug Moe.[4] Meðal annarra þekktra leikmanna í sögu liðsins má nefna Carmelo Anthony og Allen Iverson.[5]
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ „Bedlam in Broadcasting: Remembering the Chaos of Julius Erving Slicing Up the Nuggets“. SI (bandarísk enska). 6. júní 2023. Sótt 10. nóvember 2024.
- ↑ Sverrisson, Sindri (13. júní 2023). „Jókerinn einstakur og Denver meistari í fyrsta sinn - Vísir“. visir.is. Sótt 10. nóvember 2024.
- ↑ Young, Shane. „Denver Nuggets Capture Their First NBA Championship Behind Unbreakable Chemistry“. Forbes (enska). Sótt 10. nóvember 2024.
- ↑ „Retired numbers for the Denver Nuggets“. NBA.com (enska). Sótt 10. nóvember 2024.
- ↑ Dizon, Orel (24. maí 2023). „"It's just fun out there, and I feel a little bit freer on the court" - Allen Iverson on how comforting it was to play with Carmelo Anthony“. Basketball Network - Your daily dose of basketball (enska). Sótt 10. nóvember 2024.