Rosalyn Sussman Yalow
Lífvísindi 20. öld | |
---|---|
Nafn: | Rosalyn Sussman Yalow |
Fædd: | 19. júlí 1921 í New York-borg í Bandaríkjunum |
Látin | 30. maí 2011 (89 ára) í New York-borg |
Svið: | Eðlisfræði, Ónæmisfræði |
Markverðar uppgötvanir: |
Geislaónæmismæling (e. radioimmunoassay) á insúlíni og öðrum peptíðhormónum. |
Helstu ritverk: | Yalow og Berson 1960 |
Alma mater: | Illinois-háskóli í Urbana-Champaign |
Helstu vinnustaðir: |
Mount Sinai háskólasjúkrahúsið í New York |
Verðlaun og nafnbætur: |
Nóbelsverðlaunin í lífeðlis- og læknisfræði 1977 Vísindaorða bandaríkjaforseta 1988 |
Rosalyn Sussman Yalow (fædd 19. júlí 1921, dáin 30. maí 2011) var bandarískur kjarneðlisfræðingur. Hún er þekktust fyrir að hafa þróað tækni til geislaónæmismælingar (e. radioimmunoassay) á peptíðhormónum, en fyrir það hlaut hún þriðjung af Nóbelsverðlaununum í lífeðlis- og læknisfræði árið 1977 (ásamt þeim Andrew Schally og Roger Guillemin).
Geislaónæmismælingin sem Yalow og Solomon Berson þróuðu[1] er afar næm aðferð til magnmælingar á insúlíni eða öðrum mótefnavaka sem byggir á geislarakningu. Þekktu magni af insúlíni sem merkt hefur verið með geislavirkri samsætu af joði er blandað saman við þekkt magn af insúlínbindandi mótefni. Sýninu sem mæla á insúlínmagnið í er svo bætt út í. Ómerkta insúlínið í sýninu keppir nú við geislamerkta insúlínið um bindingu við mótefnið. Bundin mótefni eru þvínæst botnfelld og geislavirkni í flotinu sem eftir verður er mæld í geislamæli. Með samanburði við staðalkúrvu má sjá hversu mikið insúlín var í sýninu.
Aðferð þeirra Yalow og Berson olli byltingu í rannsóknum í innkirtlafræði og ónæmisfræði. Þeim gekk þó illa að fá uppgötvun sína á insúlínbindandi mótefni birtar í viðurkenndum tímaritum[2] því ónæmisfræðingar þess tíma töldu ósennilegt að mótefni gætu bundið svo smá peptíð sem insúlín[3]. Það kom þó fljótt í ljós hve öflug aðferð þeirra Yalow og Berson var, en fram til þess tíma höfðu magnmælingar á insúlíni eingöngu verið óbeinar og skorti mjög á næmni þeirra og áreiðanleik.
Heimildir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ R. S. Yalow og S. A. Berson (1960) „Immunoassay of endogenous plasma insulin in man“ J. Clin. Invest. 39, 1157-1175. pdf
- ↑ S. A. Berson, R. S. Yalow, A. Bauman, M. A. Rothschild og K. Newerly (1956) „Insulin-I131 metabolism in human subjects: Demonstration of insulin-binding globulin in the circulation of insulin treated subjects“. J. Clin. Invest. 35, 170-190. pdf
- ↑ D. Gellene (2011) Rosalyn S. Yalow, Nobel Medical Physicist, Dies at 89 The New York Times 1. júní 2011.
Tenglar
[breyta | breyta frumkóða]- Æviágrip Rosalyn Yalow á vefsíðu Nóbelnefndarinnar.