Menningarborg Evrópu
Menningarborg Evrópu er titill sem Evrópusambandið sæmir eina eða fleiri borgir í Evrópu á hverju ári og gildir í eitt ár. Þegar borg er útnefnd menningarborg fær hún styrk til að kynna menningarlíf borgarinnar. Verkefnið var stofnað að undirlagi Melinu Mercouri, menningarmálaráðherra Grikklands, árið 1983. Fyrsta borgin sem var útnefnd menningarborg var Aþena árið 1985. Borgirnar hafa nýtt tækifærið misjafnlega og oft hafa staðið deilur um hvort nota eigi tækifærið til að hýsa stóra alþjóðlega menningarviðburði eða kynna staðbundna menningu.
Árið 2000 voru níu borgir útnefndar menningarborgir, þar á meðal Reykjavík. Eftir það hafa tvær eða fleiri borgir oft deilt titlinum.
Listi yfir menningarborgir Evrópu
[breyta | breyta frumkóða]1 Árið 2000 ákvað Evrópusambandið að velja níu menningarborgir Evrópu til að merkja þúsundaáramótin og leggja áherslu á framlög evrópskra borga til menningar og mannkynsins. Tvær borganna eru í löndum sem hlutu aðild að Evrópusambandinu þann 1. maí 2004.
2 Áætlað var að menningaborg Evrópu ársins 2023 væri á Bretlandi en hætt var við þessi áform vegna úrsagnar Breta úr Evrópusambandinu.
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]